Spænska dagblaðið El País segir að hundruð þúsunda Spánverja víðsvegar að af landinu hafi komið til Madrid á laugardag til þess að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðhaldsaðgerða. Hingað til hafa fréttastofur nefnt 65 þúsund að hámarki. El País segir að um 200 félagasamtök og verkalýðsfélög hafi staðið að aðgerðunum og að þær séu hinar fyrstu af mörgum, sem ráðgerðar eru á þessu hausti. Þá segir blaðið að verkalýðssamtök hóti verkföllum.
Þrátt fyrir þetta segir El País að stjórnvöldum hafi létt af því að þau hafi búizt við meiri fjölda. Þá segir blaðið að meðlimir Sósíalistaflokksins hafi tekið þátt í mótmælunum, þó ekki tveir æðstu menn flokksins.
Forystumenn verkalýðsfélaga á Spáni segja að þeir íhugi að skipuleggja mótmælaaðgerðir um alla Evrópu. Þeir hafa boðið starfsbræðrum sínum í Evrópu til fundar í Madrid hinn 25. september n.k.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.