Samkeppnisstofnunin í Rússlandi hefur hafið rannsókn á því, hvort innflytjendur á norskum eldislaxi og silungi hafi brotið samkeppnislög og hvort þeir hafi gert samkomulag um að skipta á milli sín norskum framleiðendum. Frá þessu segir Barents Observer. Jan Eirk Johnsen, sem veitir forstöðu skrifstofu Norwegian Seafood Council í Moskvu vissi ekki um málið fyrr en FAS hóf rannsókn sína. Hann segir að stofnun hans hafi engin afskipti af samningum, sem norskir framleiðendur kunni að hafa við viðskiptavini sina.
Hins vegar segir Johnsen að margar hindranir hafi verið á vegi norskra framleiðenda. Þeir hafi þurft að bíða lengi eftir því að fá að flytja vöru sína til Rússlands og þeir sem hafi misst slíkt leyfi hafi þurft að bíða lengi eftir að fá það endurnýjað.
Útflutningur á norskum eldislaxi til Rússlands jókst um 60% á fyrstu níu mánuðum þessa árs.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.