SAS tilkynnti á síðustu stundu að ekki yrði gerð grein fyrir ársfjórðungs-uppgjöri félagsins hinn 8. nóvember eins og boðað hafði verið. Ástæðan er sögð að vinnu við gerð víðtækrar sparnaðaráætlunar flugfélagsins sé ekki lokið. Niðurstaða vinnu við hana og uppgjörið verði kynnt mánudaginn 12. nóvember.
Tilkynning um frestun á birtingu uppgjörsins birtist á vefsíðu SAS snemma að morgni fimmtudags 8. nóvember. Fyrir rúmri viku hófu stjórnendur SAS vinnu við sparnaðaráætlun sem miðar að því að minnka útgjöld um þrjá milljarða sænskra króna og selja eignir fyrir þrjá milljarða.
Vegna eignasölu er rætt um SAS Ground Handling og dótturfyrirtækin Widerøe og Blue1.
Norska ríkið hefur ákveðið að leggja SAS ekki til meira eigið fé. Ríkisstjórnir Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur hafa með meirihlutavald innan SAS. Reuters-fréttastofan segir nað danska ríkið ætli ekki að leggja meira fé til SAS.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.