Þriðjudagurinn 19. janúar 2021

Þýskaland: Samdráttur í útflutningi í september


8. nóvember 2012 klukkan 17:48

Spurn eftir þýskum útflutningsvörum minnkaði mikið í september og segja hagtölur að fallið sé hið mesta á einum mánuði á árinu. Þjóðverjar eru önnur mesta útflutningsþjóð heims. Tölur þýsku hafstofunnar, Destatis, sem birtust fimmtudaginn 8. nóvember sýna 2,5% samdrátt í vöruútflutningi í september miðað við ágúst og 3,4% miðað við sama mánuð á síðasta ári.

Anton Börner, forseti BGA, samtaka stórkaupmanna, útflytjenda og þjónustufyrirtækja, sagði af þessu tilefni: „Skuldavandinn í Evrópu varpar dökkum skugga á alþjóðaviðskipti. Útflutningur frá Þýskalandi hefur hrapað meira en nokkru sinni frá því að alþjóðafjármálakreppan var í hámarki.“

Útflutningstölur hagstofunnar sýna svart á hvítu hvaða áhrif skuldakreppan á evru-svæðinu hefur á spurn eftir þýskum vörum. Útflutningur til 16 annarra evru-landa minnkaði um 9% milli ára en hann jókst á milli ára um 1,6% til þjóða utan ESB.

Þýskar bílasmiðjur urðu fyrir stærsta skellinum í september. Þær seldu 7,4% færri bíla erlendis í september en ágúst. Vélaframleiðendum vegnaði best, útflutningur þeirra jókst aðeins.

Innflutningur til Þýskalands minnkaði um 75 milljarða evra í september, það er 3.6% lækkun frá sama mánuði fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 17 milljarða evra í september en 18,1 milljarð í ágúst.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS