Mario Monti sagði af sér sem forsætisráðherra Ítalíu í gærkvöldi, eftir að ítalska þingið hafði samþykkt fjárlög fyrir næsta ár. Nýjar þingkosningar fara fram hinn 24. febrúar n.k. Monti hefur verið forsætisráðherra Ítalíu í 13 mánuði. Ríkisstjórn hans mun sitja áfram sem starfsstjórn.
Skoðanakannanir benda til að vinstri flokkarnir vinni sigur og að þeir myndi ríkisstjórn miðju-vinstri flokka undir forsæti Pier Luigi Bersani, gamals kommúnista.
Finacial Times segir hins vegar að þessi staða geti breytzt ef Monti gefur kost á sér til þátttöku í stjórnmálum. Þá sé líklegra að kosningarnar snúist um störf hans og stefnu en verði ekki endurtekning á gömlum átökum milli vinstri og hægri í ítölskum stjórnmálum. Monti heldur blaðamannafund í fyrramálið, sunnudagsmorgun. Þá kemur væntanlega í ljós hvaða ákvörðun hann tekur. Nánir samstarfsmenn segja að hún liggi enn ekki fyrir. Skoðanakannanir benda til að miðjuflokkar undir forystu Montis mundu fá um 15% atkvæða.
FT segir að Berlusconi og hans menn hafi þegar hafið áróður gegn Monti og stimpli hann sem handbendi banka og Þjóðverja, sem stefni á yfirráð yfir Evrópu en Bersani sé fangi vinstri sinnaðra verkalýðsfélaga.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.