Föstudagurinn 23. apríl 2021

Schäuble: Við látum ekki Breta beita okkur fjárkúgun


23. desember 2012 klukkan 16:24
Wolfgang Schäuble

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, segir í samtali við Frankfurter Allgemeine Sonntagszeitung 23. desember að Bretar skuli ekki að reyna að beita félaga sína innan ESB „fjárkúgun“ til að flytja völd frá Brussel til London.

„Við viljum að Bretar verði áfram innan ESB og viljum ekki neyða þá til úrsagnar,“ sagði Schäuble við blaðið. „Ég vil hins vegar einnig taka fram að í þessu felst ekki að unnt sé að beita okkur fjárkúgun.“

Blaðamaður spyr Schäuble hvort umræður í Bretlandi um hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild landsins að ESB sé „hættuleg“. Ráðherrann svarar að Evrópusambandið verði að sýna samstöðu út á við og ekki láta neinn bilbug á sér finna.

„Hinir bresku vinir okkar eru ekki hættulegir. Þjóðaratkvæðagreiðsla mundi hins vegar skapa óvissu,“ sagði hann.

Hann sagðist aðeins „reiðast“ Bretum vegna fótbolta og lýsti von um „meiri virkni Breta í Evrópu en ekki minni“.

David Cameron, forsætisráðherra Breta, sagði í nóvember sl. að hann styddi aðild Breta að ESB en hann gæti ekki sætt sig við „óbreytt ástand“ og hann vildi „nýja lausn“ sem fæli í sér að breska ríkisstjórnin fengi að nýju vald yfir málaflokkum sem hafa verið fluttir til Brussel.

Cameron hefur aldrei tekið undir kröfur um þjóðaratkvæðagreiðslu „af eða á“ um ESB-aðild en þær hafa verið háværar innan flokks hans.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS