Sunnudagurinn 18. apríl 2021

Norski utanríkis­ráðherrann blandar sér í deilur Breta um samskiptin við ESB


23. desember 2012 klukkan 23:27

Espen Eide, utanríkisráðherra Noregs, hefur blandað sér í umræður á Bretlandi um tengsl Bretlands og Evrópusambandsins og hvatt Breta til að meta kosti þess að halda áfram aðild að sambandinu. BBC segir að þeir sem efist um aðild Bretlands að ESB noti Noreg sem dæmi um ríki sem sé ekki í ESB en eigi aðild að innri markaði sambandsins, það er með aðild að evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Espen Eide

Í viðtali við fjórðu rás BBC sunnudaginn 23. desember sagði Eide að norsk yfirvöld hefðu „takmörkuð áhrif“ innan EES „Við sitjum ekki við borðið þegar ákvarðanir eru teknar,“ sagði hann.

BBC segir að Eide vilji að Noregur gerist aðili að en Norðmenn hafi tvisvar hafnað aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu 1972 og 1994. Þá er haft eftir Sir Nigel Sheinwald, fyrrverandi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og gagnvart ESB:

„Málið snýst um það hvort ríki vilji aðild að innri markaðnum. Allt bendir til að það sé hagkvæmt fyrir Breta. En [Norðmenn] eiga enga aðild að töku ákvarðana, þeir hafa engin áhrif og bera enga ábyrgð. Um er að ræða reglur án aðildar.

Bretar verða fyrst að ákveða hvort þeir vilji eiga aðild að innri markaði með því að standa innan dyra eða utan. Séu menn fyrir utan veitir staða Norðmanna eða Svisslendinga þjóðum engin raunveruleg áhrif á efni þess sem ákveðið er.“

----

Þá er haft eftir Daniel Hannan, ESB-þingmanni Íhaldsflokksins, að hann viti ekki um neinn ESB-efahyggjumann í Bretlandi sem telji að fara eigi alfarið að fordæmi Norðmanna eða Svisslendinga. Hann segist hallast frekar að stöðu Svisslendinga [þeir hafa gert tvíhliða samninga við ESB] en Norðmanna en hann sé viss um að Bretar muni ná betri niðurstöðu en Norðmenn eða Svisslendingar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS