Skuldavandinn bæði í Bandaríkjunum og Evrópu skapar mesta hættu fyrir heimsbúskapinn á árinu 2013 segir Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Siglitz í hinu þýska Handelsblatt miðvikudaginn 2. janúar.
„Þegar litið er til efnahagshorfa árið 2013 eru Bandaríkin og Evrópa helstu áhættuvaldarnir,“ segir Siglitz og bætir við „en hina raunverulegu hættu fyrir heimsbúskapinn er að finna í Evrópu“.
„Spánverjar og Grikkir eru í efnahagslegri lægð og þar er engin von um bata. Í ríkisfjármálasamningi evru-svæðisins felst engin lausn og skuldabréfakaup Seðlabanka Evrópu lina þjáningarnar aðeins tímabundið,“ segir Stiglitz í grein sinni.
Hann telur að Seðlabanki Evrópu megi ekki setja frekari skilyrðið við fjárhagslegri aðstoð við ríki. „Sé það gert mun lyfjagjöfin leiða til þess að sjúklingnum hraki,“ segir Joseph Siglitz.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.