Mánudagurinn 18. janúar 2021

Atvinnuleysi innan ESB í fyrsta sinn yfir 26 milljónir manna - 57% yngri en 25 ára atvinnulausir á Spáni og Grikklandi


8. janúar 2013 klukkan 13:11

Atvinnuleysi innan ESB og sérstaklega í evru-löndunum heldur áfram að vaxa. Tölur sem hagstofa ESB, Eurostat, birti þriðjudaginn 8. janúar sýna að alls reyndust 11,8% án atvinnu í nóvember á evru-svæðinu en voru 11,7% í október. Nú eru tæplega 19 milljónir manna atvinnulausir í evru-löndunum 17. Bilið milli þjóða í norður- og suðurhluta ESB breikkar í efnahagslegu tilliti.

Atvinnuleysi á evru-svæðinu þar sem búa um 330 milljónir manna eykst nú í 19. skiptið í röð og í nóvember 2012 voru 2 milljónum fleiri án atvinnu á svæðinu en í nóvember 2011. Sérfræðingar spá rúmlega 12% atvinnuleysi á árinu 2013.

Innan ESB í heild, í 27 ríkjum, fór tala atvinnulausra í fyrsta sinn yfir 26 milljónir manna í nóvember en hlutfallið hélst hið sama og áður, 10,7%.

Mest er atvinnuleysið á Spáni 26,6% og 57% meðal þeirra sem eru yngri en 25 ára, þessi tala er svipuð á Grikklandi en þar er heildaratvinnuleysi aðeins minna en á Spáni

Eurostat birtir tölur til samanburðar um atvinnuleysi meðal helstu samkeppnisþjóða ESB. Í nóvember var það 7,8% í Bandaríkjunum og 4,1% í Japan.

Laszlo Andor í framkvæmdastjórn ESB þar sem hann fer með atvinnumál, félagsmál og samheldnismál sagði þegar tölurnar höfðu verið birtar: „2012 hefur verið enn eitt mjög slæmt ár fyrir Evrópu þegar litið er til atvinnuleysis og versnandi stöðu félagsmála.“

Hann vék að bilinu milli þjóða í norður- og suðurhluta ESB, Þjóðverjar og nágrannaþjóðir þeirra hefðu það mun betra en þjóðir í suðurhlutanum og við Miðjarðarhaf. Andor taldi litlar líkur á að betur áraði í efnahags- og félagsmálum ESB á árinu 2013. „Bilið er að aukast,“ sagði Andor um stöðuna milli norðurs og suðurs.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS