Fyrrum forsætisráðherra Finnlands, Paavo Lipponen leggst gegn því að kennsla í sænsku verði felld niður og kennsla í rússnesku tekin upp í staðinn í skólum í austurhluta Finnlands. Þetta kemur fram í svari Lipponen við sjónarmiðum, sem finnska blaðið Lltalehti, setti fram í ritstjórnargrein, þar sem slík breyting er studd. Lipponnen segir að ekki eigi að gera austurhluta Finnlands að eins konar tungumála „gettói“, þar sem fólk lokist inni vegna þess að það kunni ekki sænsku.
Lipponen segir að tungumálalögin í Finnlandi byggi á því að gefa öllum Finnum tækifæri á vinnumarkaði bæði í Finnlandi og á öðrum Norðurlöndum. Hann undirstrikar mikilvægi þekkingar á rússnesku og öðrum tungumálum en telur að það eigi ekki að vera á kostnað sænskunnar.
Í Finnlandi eru tvö opinber tungumál, finnska og sænska, og öll skólabörn læra bæði málin. Töluverður hluti fólks í vesturhluta Finnlands notar sænsku sem sitt aðalmál en minna í austurhluta landsins. Í þeim hluta er nú meiri áhugi á að læra rússnesku.
Í fyrrnefndri ritstjórnargrein segir að ný könnun sýni 90% stuðning við að skipta úr sænsku yfir í rússnesku. Lltalehti er þriðja stærsta dagblað í Finnlandi. Frá þessu segir í Barents Observer.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.