Dómsmálaráðherra Danmerkur hefur lagt fram frumvarp til laga um hert eftirlit með PET (Politets Efterretningstjeneste), dönsku leyniþjónustunni. Samstaða er um málið milli stjórnar og stjórnarandstöðu á danska þinginu fyrir utan Enhedslisten, sem er lengst til vinstri.
Tilgangurinn með frumvarpinu er að laga lög um PET að nýjum kröfum og koma á fót sérstakri eftirlitsstofnun til að fylgjast betur með hvernig PET fer með upplýsingar um einstaklinga og lögpersónur. Vísað er til álits nefndar um starfsemi PET og FE, (Forsvarets Efterretningstjenste), leyniþjónustu hersins. Verkaskipting á milli PET og FE er í stórum dráttum að PET sinnir störfum innan lands en FE utan Danmerkur.
Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að í lögum sé mælt fyrir um verkefni PET, það er að lagaákvæði setji starfseminni skýran ramma. Þá verði einnig lögbundið hvernig PET stendur að söfnun, skráningu og annarri meðferð á upplýsingum. Auk þess verði sjálfstæðri stofnun falið að halda uppi eftirliti með PET og komi hún í stað Wamberg-nefndarinnar sem hefur starfað síðan 1964 og ber nafn fyrsta formanns síns A. M. Wambergs, amtmanns. Þá verði ákveðið með lögum hver hafi aðgang að upplýsingum í vörslu PET.
Samhliða þessu leggur dómsmálaráðherrann fram frumvarp til laga um breytingar á verkefnum þingnefndar sem fylgist með störfum PET og FE sem miðar að því að auka hlut þingmanna og aðild þeirra að ákvörðunum um skipan eftirlitsstofnunarinnar með leyniþjónustunum. Til þessa hefur dómsmálaráðherrann einn valið menn í Wamberg-nefndina. Þá miðar frumvarpið einnig að meiri upplýsingum verði miðlað um störf þingnefndarinnar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.