Klaus-Peter Willsch, þingmaður úr flokki Angelu Merkel, Þýskalandskanslara, kristilega demókrataflokknum (CDU) hvatti föstudaginn 1. mars til þess að Ítalir segðu sig frá evrunni gætu þeir ekki farið að ESB-reglum að loknum þingkosningunum 24. febrúar.
„Sé ekki unnt að sannfæra íbúa lands um að þeir eigi að standa við skuldbindingar sínar um hvernig standa beri að sameiginlegri mynt geta annarra þjóða menn ekki krafist nýrra kosninga, þjóðin verður hins vegar að snúa aftur til eigin myntar,“ sagði Willsch.
„Ef við viljum snúa að nýju til samvinnu í Evrópu sem reist er á friðsamlegri, gagnkvæmri virðingu og rétti til sjálfsákvörðunar verðum við að hverfa frá þessari hugmyndafræði um evru-Evrópu,“ sagði þingmaðurinn sem er kunnur fyrir gagnrýni sína á ESB.
Beppe Grillo og flokkur hans 5-stjörnu-hreyfingin sem fékk um fjórðung atkvæða í ítölsku þingkosningunum börðust gegn evrunni fyrir kosningarnar.
Mauro Gallegati, ítalskur prófessor, sem talinn er einn helsti ráðgjafi Grillos í efnahagsmálum sagði hins vegar föstudaginn 1. mars í samtali við ítalska blaðið Corriere della Sera, að með því að segja skilið við evruna mundu Ítalir gerast sekir um „dramatísk og fráleit mistök sem mundu skerða laun þeirra um 30 til 40%“.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.