Steingrímur J. Sigfússon: Ísland er ekki á hraðferð inn í Evrópusambandið
Haraldur Benediktsson, fráfarandi formaður Bændasamtakanna sagði við setningu Búnaðarþings í dag, sunnudag, að í sínum huga væri umsóknin um aðild að Evrópusambandinu pólitískt dauð, henni yrði endanlega aflýst eftir þingkosningarnar í vor en þær kosningar yrðu fullveldiskosningar.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sagði í ræðu sinni að hefði einhver áhyggjur af því að Íslandi væri á hraðferð inn í Evrópusambandið væru þær áhyggjur óþarfar.
Haraldur Benediktsson sagði í setningarræðu sinni:
„Í mínum huga er umsókn um aðild að Evrópusambandinu pólitískt dauð, henni verður endanlega aflýst eftir alþingiskosningarnar í vor, en þær kosningar eru fullveldiskosningar. Við höfum staðið fast á okkar stefnu í málinu og sætt margvíslegum ákúrum en okkar sjónarmið hafa aldrei verið hrakin.
Nýjasta sending frá ESB til okkar er að sambandið hyggst hafa meðalgöngu í málaferlum gegn Íslandi, svona rétt eins og glæsilegur árangur þeirra í Icesave var, í deilum um að troða inn í landið hráu kjöti, sem ESB getur ekki ábyrgst hvort hneggjaði eða baulaði í lifandi lífi. Allt á grundvelli fullkominnar löggjafar um heimsins besta matvælaeftirlit. Verði þeim að góðu.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.