-segir David Begg, forseti írska alþýðusambandsins
Fjárfestingar á Írlandi eru komnar niður í 10% af vergri landsframleiðslu að því er fram kemur í Daily Telegraph. Þetta er lægsta fjárfestingarstig, sem þekkzt hefur á Írlandi og hið lægsta innan ESB. Talsmaður Fjársýslu ríkisins á Írlandi segir að breytist þetta ekki á allra næstu árum sé það áhyggjuefni.
Ár hvert síðustu ár hafa 40 þúsund til 50 þúsund Írar flutt af landi brott sem er meginástæðan fyrir því að atvinnuleysi er í 14,1% en 60% af atvinnulausum hafa verið án atvinnu í meira en ár.
David Begg, forseti írska alþýðusambandsins segist vera búinn að átta sig á því að uppbygging ESB sé með þeim hætti að allar byrðar vegna kostnaðaraðlögunar lendi á launþegum ef um meiriháttar efnahagsáfall er að ræða. Innri gengislækkun er náð með þeim hætti að skapa svo mikið atvinnuleysi að verkalýðshreyfingin hafi ekki mátt til að veita viðnám. Gengislækkun gjaldmiðils dreifi byrðunum betur og bendir á, að atvinnuleysi á Íslandi sé 5,4% og í Bretlandi 7.7%. David Begg segir að slíkt tillitsleysi í útdeilingu byrða, sem menn hafi orðið vitni að á Írlandi á síðustu 5 árum sé örlagaríkur veikleiki (fatal flaw).
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.