Martin Schulz, forseti ESB-þingsins, jafnaðarmaður frá Þýskalandi, hvatti sunnudaginn 17. mars til þess að litlir sparifjáreigendur á Kýpur yrðu verndaðir gagnvart neyðarlánskilyrðum ESB. Hann segir að allar lausnir á skuldavanda evru-svæðisins verði að njóta „félagslegs samþykkis“.
„Viðskiptatvinir bankanna eiga að koma að málinu,“ segir þingforsetinn í viðtali við netútgáfu Welt am Sonntag en bætir við að venjulegir borgarar beri ekki ábyrgð á vandanum.
Þeir sparifjáreigendur á Kýpur sem eiga innstæðu undir 100.000 evrum verða að greiða 6.75% af henni í ríkissjóð vegna neyðarlánsins. Þeir sem eiga meira en 100.000 verða að greiða 9,9%. Sparifjáreigendur fá framlag sitt bætt með jafnhárri fjárhæð í hlutabréfum í viðkomandi banka. Um er að ræða eingreiðslu. Samningar um 10 milljarða evru neyðarlán frá þríeykinu, ESB, Seðlabanka Evrópu (SE) og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS), eru reistir á þessu. Aldrei fyrr hefur sambærilegt skilyrði verið sett fyrir neyðarláni þríeykisins.
„Lausnin verður að njóta félagslegs samþykkis,“ sagði Schulz. „Það verður að leiðrétta þetta, til dæmis með því að veita þeim undanþágu frá gjaldinu sem eiga minna en 25.000 evrur á sparireikningum.“
Kristilegir demókrata (CDU/CSU) í flokki Angelu Merkel Þýskalandskanslara hafa fagnað þeim skilyrðum sem sett voru fyrir neyðarláninu til Kýpverja. Bundestag, neðri deild þýska þingsins, verður að samþykkja lánveitinguna.
Rainer Brüderle, kanslaraefni frjálsra demókrata (FDP), minni þýska stjórnarflokksins, sagði að innan flokksins hefðu menn ekki tekið afstöðu til lánveitingarinnar.
Wolfang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði laugardaginn 16. mars að vonandi mundi þýska þingið taka afstöðu til málsins í aprílmánuði.
Talsmaður þýskra jafnaðarmanna (SPD) helstu stjórnarandstæðinganna sagði Die Welt að í samkomulaginu í Brussel um neyðarlán til Kýpverja væri látið hjá líða að taka á mörgum atriðum sem snerta fjármálakerfi Kýpur.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.