Arctic Circle skapar Asíuríkjum jafna stöðu við Norðurskautsríkin
Kona að nafni Mia Bennett birti í gær grein á vefsíðu, sem nefnist eyeonthearctic, þar sem hún heldur því fram, að umræðuvettvangurinn Arctic Circle, sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kynnti í Washington fyrir skömmu sé hugsaður sem eins konar samkeppnisaðili við Norðurskautsráðið. Forsetinn hafi gagnrýnt yfirstjórn (governance) Norðurslóða og skort á alþjóðlegri vitund um þetta svæði. Hún bendir á að hinn nýi umræðuvettvangur sé kynntur í kjölfar fríverzlunarsamnings Íslands og Kína.
Með Arctic Circle sé búið að skapa vettvang, þar sem Asíuþjóðirnar hafi jafna stöðu við Norðurskautslöndin, sem fái aukna þýðingu fái Asíuríkin ekki áheyrnarfulltrúa á fundi Norðurskautsráðsins. Mia Bennett segist hins vegar þeirrar skoðunar að stofnun þessa umræðuvettvangs geti orðið til þess að ýta undir að Asíuríkin, sem sótt hafa um að fá fasta áheyrnarfulltrúa fái samþykki við því á fundi Norðurskautsráðsins, sem framundan er.
Mia Bennett hefur lokið námi í stjórnmálafræði frá University of California og stundar nú rannsóknir á málefnum norðurskautsins við Cambridge. Hún talar sænsku og hefur starfað sem lærlingur í sendiráði Bandaríkjanna í Osló.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.