Þriðjudagurinn 2. mars 2021

Eitraður Eystrasaltslax fluttur út frá Svíþjóð - ESB grípur í taumana


8. maí 2013 klukkan 16:24

Fyrirtæki í Svíþjóð hafa selt um 200 tonn af Eystrasaltslaxi í Evrópu þrátt fyrir bann ESB gegn eiturefnum í fiski. Bannið nær ekki til heimamarkaða í Svíþjóð, Finnlandi og Lettlandi. Seljendur eru hvattir til að birta upplýsingar um hættumörk ESB sem gilda til varnar fyrir neytendur.

ESB setti reglur um eiturefni í fiski í Eystrasalti árið 2002 eftir að díóxín fannst í Eystrasaltssíld.

Franskt fyrirtæki hafði flutt inn 103 tonn af sænska laxinum en er hætt því. Fulltrúi fyrirtækisins Pêcheries Nordiques sagði við AFP-fréttastofuna að á árunum 2011 og 2012 hefðu sýni ekki sýnt nein athugavert við fisk sem var innfluttur. „Enginn sagði okkur að þetta væri ólöglegt,“ sagði François Agussol forstjóri.

Jan Sjögren, frá Matvælaeftirliti Svíþjóðar, sagði við BBC að Eystrasaltslax hefði einnig verið seldur ólöglega til Danmerkur og Hollands frá Svíþjóð. Eftirlitsmenn létu framkvæmdastjórn ESB vita um niðurstöðu sína en hún hefur samband við matvælaeftirlitsstofnanir ESB-ríkja.

Sjögren segir að athygli sænskra tollyfirvalda hafi verið vakin á starfsemi fyrirtækis í Karlskrona og einnig væri unnið að rannsókn á fyrirtæki í Hammarö. Hann telur að ekki sé lengur fluttur út Eystrasaltslax.

Sænska matvælastofnunin telur að að meðalneysla fullvaxta Svía á díóxíni sé innan „þolanlegra vikulegra marka“ sem ESB hefur sett. Stofnunin hvetur hins vegar börn og ungar konur til að takmarka neyslu sína á villtum Eystrasaltslaxi.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS