Olli Rehn, sá fulltrúi í framkvæmdastjórn ESB, sem hefur með björgunaraðstoð við önnur aðildarríki að gera svaraði í morgun á ráðstefnu í Helsinki gagnrýni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á framkvæmd björgunaraðgerða við Grikkland. Hann sagði að það væri ósangjarnt og ekki rétt að AGS þvoi hendur sínar og helli skítugu vatni yfir Evrópubúa. Hann sagði að skýrsla AGS um Grikkland væri brot á þeirri reglu, sem til hefði orðið á milli Evrópuþjóða í stríðinu á Balkanskaga fyrir tveimur áratugum, að sameinaðir stöndum við en sundraðir föllum við.
Í samtali við Financial Times eftir ræðu sína beindi Olli Rehn spjótum sínum að Christine Lagarde, forstjóra AGS sem var fjármálaráðherra Frakklands árið 2010 þegar fyrsta björgunarastoðin við Grikkland var veitt og sagði að hún hefði verið andvíg öllum afskriftum af lánum til Grikklands á þeim tíma. Forveri hennar í starfi hjá AGS, Dominique Strauss-Khan, hefði heldur aldrei mælt með afskriftum.
Olli Rehn kvaðst ekki minnast þess að Strauss-Khan hefði lagt slíkar tillögur fram en hann sagðist muna eftir því að Lagarde hefði verið mótfallin slíkum hugmyndum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.