Max Planck-lýðfræðirannsóknastofnunin í Þýskalandi hefur birt niðurstöður rannsókna sem sýna að fæðingum hefur fækkað í Evrópu vegna efnahagskreppunnar. Eftir að kreppan hófst árið 2008 stöðvaðist þróun í átt til fleiri fæðinga.
Áhrifin eru mest í Suður-Evrópulöndum, einkum á Spáni. Þar var tíðni fæðinga 1,24 barn á konu í upphafi 2000 og hækkaði jafnt og þétt í 1,47 árið 2008. Á árinu 2009 lækkaði talan í 1,4 á sama tíma og atvinnuleysi jókst úr 8,3 í 11,3%. Á árinu 2011 hafði talan lækkað í 1,36. Nú er 26,8% atvinnuleysi á Spáni.
Fæðingum fækkaði einnig umtalsvert í Ungverjalandi, Króatíu, Lettlandi og á Írandi.
Kreppan hefur ekki leitt til mikilla þreninga á vinnumarkaði í Þýskalandi, Austurríki og Sviss og þar hefur fæðingatíðni einnig lítið breyst. Í Þýskalandi helst tala fyrir neðan 1,4 barn.
Stofnunin kannsði gögn frá 2001, 2010 og 2011.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.