Dómstóll í Múrmansk í Rússlandi hefur framlengt gæsluvarðhald yfir sjö aðgerðasinnum grænfriðunga til tveggja mánaða vegna tilrauna til að leggja undir sig rússneskan olíuborpall. Um er að ræða tvo Rússa, Frakka, Pólverja, Nýsjálending, Kanadamann og bandarískan skipstjóra á skipi Greenpeace sem stóð að aðgerðinni.
Enn bíða 23 aðgerðasinnar eftir að heyra ákvörðun dómara í máli þeirra. Grænfriðungar segja að þeir hafi staðið löglega að friðsamlegum mótmælum. Strandgæslumenn handtóku þá vegna gruns um sjórán eftir að tveir klifu upp á borpallinn.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði aðgerðasinnana augljóslega „ekki sjóræningja“ en gagnrýndi ekki að þeim væri haldið innan rimla fangelsis.
Fréttaritari BBC, Daniel Sandford, segir: „Þetta er í fyrsta sinn sem grænfriðungar hafa verið ákærðir fyrir sjórán.“
Sé mönnum refsað fyrir sjórán í Rússlandi má dæma þá í allt að 15 ára fangelsi.
Krafist var gæsluvarðhalds yfir mönnunum 30 á meðan mál þeirra væri rannsakað. Þeir eru yfirheyrðir í sex manna hópum í dómhúsinu.
Skip Grænfriðunga, Arctic Sunrise, var dregið til Múrmansk með allri áhöfn þess um borð eftir að rússneskir sérsveitarmenn höfðu hertekið skipið og þá aðgerðasinna sem klifu borpallinn sem er í eigu rússneska olíufyrirtækisins Gazprom..
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.