Krafa þeirra veldur áhyggjum hjá framkvæmdastjórn ESB
Þjóðverjar leggja nú áherzlu á strangar reglur um verndun upplýsinga í fríverzlunarsamningi á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, sem er til umræðu. Financial Times segir þetta vísbendingu um afleiðingar mikillar reiði í Þýzkalandi vegna uppljóstrana um símahleranir- og neteftirlit Bandaríkjamanna og áhyggjur af iðnaðarnjósnum. Stjórnvöld í Berlín munu þrýsta á framkvæmdastjórn ESB um að slík ákvæði verði í væntanlegum samningi. Framkvæmdastjórnin hefur hins vegar áhyggjur af því að sögn FT að verði slíkar tillögur lagðar fram geti það tafið samningsgerðina og jafnvel komið í veg fyrir að hún verði að veruleika.
Embættismenn í Brussel segja að þessar tillögur komi á óvart en þær koma í kjölfarið á hvatningu Viviane Reding, sem sæti á í framkvæmdastjórninni í síðustu viku um að þessum málefnum verði ekki blandað saman við viðræður um fríverzlunarsamning. FT segir að afstaða Merkel til málsins sé að harðna.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.