Laugardagurinn 6. mars 2021

Þýzkaland: „Kristallnacht“ minnzt með margvíslegum hætti

Nýjar kenningar um upphaf Helfararinnar


9. nóvember 2013 klukkan 10:49

Nú um helgina er þess minnzt að 75 ár eru liðin frá „Kristallnacht“, nóttinni milli 9. og 10. nóvember 1938, þegar nazistar í Þýzkalandi fóru ránshendi um eigur Gyðinga um landið allt, settu eld að bænahúsum þeirra og fluttu um 30 þúsund karlmenn af Gyðingaættum í fangabúðir. Talið er að um 90 Gyðingar hafi verið drepnir þessa nótt.

Tilefnið var dauði Ernst vom Rath, þýzks diplómats, sem sagt var að 17 ára gamall piltur af Gyðingaættum hefði myrt hinn 7. nóvember 1938 í hefndarskyni fyrir meðferð á fjölskyldu sinni. Nú er því haldið fram af sagnfræðingi og blaðamanni að vom Rath hafi ekki dáið af skotsárinu heldur hafi hann verið látinn deyja til þess að nota tilefnið til að hefja Helförina gegn gyðingum.

Um helgina verður þessara atburða minnzt með margvíslegum hætti í Þýzkalandi. Angela Merkel segir að þessi helgi fyrir 75 árum hafi verið einn svartasti kapítuli þýzkrar sögu. Efnt er til listasýninga af þessu tilefni, guðsþjónustur eru helgaðar þessum atburðum og ræður haldnar. Í gær heimsótti Joachim Gauck, forseti Þýzkalands, fyrrum vinnustað blindra og heyrnarlausra Gyðinga á árum heimsstyrjaldarinnar síðari, sem nú er safn. Búizt er við að um 100 verzlunareigendur í Þýzkalandi setji límmiða á búðarglugga sína til að búa til ímynd brotinnar rúðu. Þá hafa Berlínarbúar verið beðnir að hreinsa minningarsteina með nöfnum fórnarlamba Helfararinnar, sem komið hefur verið fyrir á síðasta þekkta dvalarstað þeirra.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS