Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sem bíður brottvikningar úr öldungadeild ítalska þingsins. hefur lagt niður hinn gamla flokk sinn, Frelsisflokk fólksins (PDL) og stofnað nýjan flokk Forza Italia sem styður ekki ríkisstjórn Enricos Letta forsætisráðherra. Andstaða Berlusconis dugar ekki til að fella ríkisstjórnina.
Í ræðu sem Berlusconi hélt laugardaginn 16. nóvember til að gefa gamla flokknum nýtt nafn sagði hann að vegna yfirvofandi brottvikningar á sér af þingi gæti hann ekki átt samstarf við Enrico Letta, stjórn hans ætti að segja af sér.
„Það er mjög erfitt að ímynda sér að nokkrir geti starfað saman í þingi og því síður setið við sama ríkisstjórnarborð með einhverjum sem vilja gera út af við leiðtoga annars samstarfsaðilans á pólitískum vettvangi,“ sagði Berlusconi.
Angelino Alfano, fyrrveandi framkvæmdastjóri PDL og hægri hönd Berlusconis, stofnaði föstudaginn 15. nóvember Nýja mið-hægri-flokkinn. Um þriðjungur þingmanna PDL í fulltrúa- og öldungadeildunum styður Alfano að sögn fjölmiðla 16, nóvember.
Upplausnarástand hefur verið í röðum PDL-þingmanna síðan í september þegar Berlusconi krafðist árangurslaust að ráðherrar flokksins segðu skilið við embætti sín og ríkisstjórnin hyrfi frá völdum, Alfano beitti sér þá í fyrsta sinn opinberlega gegn stefnu Berlusconis og sat sem fastast í ríkisstjórninni.
Hinn 27. nóvember er þess vænst að ítalska öldungadeildin greiði atkvæði um þingsetu Berlusconis.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.