Barroso er ekki mikill leiðtogi-Ashton hefur enga skoðun
Fólkið er ekki að hafna Evrópu, fólkið er að hafna „eurokrötunum“ (embættismannakerfinu), segir Rachida Dati, fyrrum dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Sarkozy í samtali við Sunday Telegraph í dag. Hún segir að það sé andúð fólks á embættismannaliðinu í Brussel, sem sé undirrót vaxandi stuðnings kjósenda við pópúlíska flokka í Evrópu og jafnvel öfgaflokka.
Rachida Dati var lengi í uppáhaldi hjá Sarkozy en var síðar rekinn úr ríkisstjórninni. Hún hefur nú náð sér á strik á ný og er borgarstjóri í sjöunda hverfi Parísar. Blaðið segir að ummæli Dati séu vísbending um vaxandi andúð á Evrópusambandinu í Frakklandi. Í samtalinu lýsir Dati stuðningi við þá afstöðu David Cameron að hlusta á fólkið, lýsa skilningi á viðhorfi þess til ESB og bjóða upp á valkost. Hún segir að Cameron sýni vilja til að hlusta á fólkið í Bretlandi og áhyggjur þess.
Dati segir að ungt fólk í Evrópu hafi fæðst sem Evrópubúar. Þetta unga fólk vilji geta ferðast til Berínar, London og Madrid án hindrana. Það vilji ekki að við það verði sagt að það geti ekki gengið í háskóla hvar sem er í Evrópu. Þetta unga fólk vilji Evrópu, sem reyni ekki að gera allt. Hugsa þurfi vandlega um stöðu Evrópusambandsins, hvað það geri vel og hvað það geri ekki vel.
Evrópa hafi keyrt á vegg. Vandamálið sé fólkið sem sé að leiða Evrópusambandið. Barroso sé hvorki mikill leiðtogi né kjarkmikill maður. Utanríkisstjóri ESB, Catherine Ashton hafi enga skoðun á arabíska vorinu, enga skoðun á innflytjendamálum, enga skoðun á Íran.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.