Miðvikudagurinn 11. desember 2019

Liechtensteinnemar standa sig best í stærðfræði utan Asíu


3. desember 2013 klukkan 16:03

Grunnskólanemar í Liechtenstein og Sviss standa sig best í stærðfræði fyrir utan nemendur í Asíulöndum. Þetta sýna niðurstöður PISA-könnunarinnar 2012 sem birtar voru þriðjudaginn 3. desember.

PISA er skammstöfun fyrir Programme for International Student Assessment. Könnunin hefur verið gerð þriðja hvert ár undir handarjaðri OECD. Að þessu sinni var lögð megináhersla á stærðfræðilæsi, þar lentu 15 ára Liechtensteinbúar í áttunda sæti með 535 stig en Svisslendingar í níunda með 531 stig og Hollendingar í 10. sæti með 523 stig.

Alls tóku 510.000 nemendur í 65 löndum og héruðum þátt í könnuninni. Shanghai, Singapore, Hong Kong voru í efsta sæti og síðan Tævan, Suður-Kórea, Macao og Japan.

Nemendur í Shanghai fengu 613 stig sem jafngildir að þeir séu um þremur árum lengra komnir í stærðfræði en meðaltalsnemandi með 494 stig, Íslendingar fengu 493 stig í 27. sæti.

Hlutfall bestu nemenda í stærðfræði í Shanghai var 55,4%, í Sviss var það 21.4% að meðaltali innan OECD-landa 12,6% og á Íslandi 11,2%.

Í skýrslu OECD sem fylgir PISA-niðurstöðunum segir:

„Þeir sem standa sig best, einkum í Asíu, leggja mikla áherslu á að velja og þjálfa kennara, hvetja þá til að vinna saman og leggja höfuðáherslu á að festa fé í góðum kennurum ekki í fjölda í bekkjum. Þeir setja einnig skýr markmið og veita kennurum sjálfstæði í kennslustofunni til að ná þeim.“

Heimild: The Local

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS