Sunnudagurinn 8. desember 2019

Áfall fyrir Frakka: London vinsælli ferðamannaborg en París


16. janúar 2014 klukkan 12:16

London hefur slegið París við sem sú borg heims sem flestir ferðamenn heimsækja segir í Le Figaro fimmtudaginn 16. janúar. Þar kemur fram að 16 milljónir ferðamanna hafi heimsótt London á árinu 2013 en 15,9 milljónir París.

Notre Dame i París.

Parísabúar hafa löngum barið sér á brjóst fyrir að búa í vinsælustu ferðamannaborg heims. Þeir verða nú að hætta því og er það aðeins til að setja salt í sárið að nú hafi London skotist fram úr París, Englendingar fram úr Frökkum, þegar háð er ritdeila í breskum blöðum þar sem franski sendiherrann í London sakar breska fjölmiðla um tala niður til Frakka.

Nú hafa Eiffel-turnin og Notre Dame-kirkjan í París orðið að láta í minni pokann fyrir British Museum, Tate Modern, Camden-markaði og Tower í London.

Á listanum yfir vinsælustu borgirnar er Bangkok í þriðja sæti og New York í hinu fjórða.

Boris Johnson, borgarstjóri í London, segir að rekja megi fjölgun ferðamanna árið 2013 til áhrifa frá Ólympíuleikunum árið 2012. Kit Malthouse, varaborgarstjóri í London, segir:

„Olympíuleikarnir breyttu ímynd London. Fólk sá fallega borg, opna og lifandi en ekki gömlu myndina af Beefeater-varðmönnunum og drottningunni.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS