Bæði Noregur og Kanada hafa ákveðið að áfrýja úrskurði WTO (World Trade Organisation) frá því í nóvember, sem stóð með Evrópusambandinu, sem bannaði innflutning á selaafurðum frá þessum tveimur löndum á árinu 2009. Norðmenn og Kanadamenn lögðu það bann fyrir WTO og héldu því fram að seladrápið væri mannúðlegt og að það væri nauðsynlegur þáttur í því að hafa stjórn á auðæfum sjávar. Ef selir væru ekki veiddir væri það ógnun við fiskistofna.
Í 122 síðna skýrslu Evrópusambandsins um málið segir að almenningur í aðildarríkjum sé að yfirgnæfandi meirihluta hlynntur banninu og að vísindalegar rannsóknir staðfesti að drápsaðferðir séu grimmdarlegar.
Stjórnvöld í Osló og Ottawa segja að í banni Brussel felist mismunun vegna þess að sala á selaafurðum frá Svíþjóð og Finnlandi sé ekki bönnuð.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.