Sakadómur í Marseille í Frakklandi dæmdi mánudaginn 3. febrúar mann í eins árs fangelsi fyrir að kasta kettlingi í vegg og sýna mynd af því á netinu. Kettlingurinn, Óskar, lifði kastið en tvær lappir hans brotnuðu.
Myndbandið sem nú hefur verið fjarlægt af YouTube vakti ofsareiði um allt Frakkland og víðar þegar það birtist í síðustu viku. Maðurinn sést taka mjálmandi kettlinginn kasta honum frá sér í vegg á íbúðarhúsi í fjögurra til fimm metra fjarlægð þar sem hann fellur til jarðar.
Um 40.000 reiðir dýravinir sendu áskorun til ráðherra í frönsku ríkisstjórninni og hvöttu til að manninum yrði refsað. Lögreglan handtók 24 ára gamlan mann föstudaginn 31. janúar og var hann dæmdur mánudaginn 3. febrúar í eins árs fangelsi.
Enginn vissi hvað hafði orðið um kettlinginn Óskar en hann fannst um helgina, lappabrotinn og miður sín en talið er að hann muni ná sér eftir harðræðið.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.