Mánudagurinn 1. mars 2021

Þýski utanríkis­ráðherrann hálfvolgur í stuðningi við ESB-óskir Breta


3. febrúar 2014 klukkan 20:09

.

Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, lýsti mánudaginn 3. febrúar hálfvolgum stuðningi við vonir Breta um breytingar á sáttmálum ESB. Fyrir nokkrum dögum gerðu Frakkar ljóst að þeir hefðu ekki sérstakan áhuga á að semja við Breta um ný ESB-aðildarkjör.

Frank-Walter Steinmeier

Steinmeier lét þessi orð falla eftir fund í London með William Hague, utanríkisráðherra Breta. „Það væri orðum aukið að segja að Bretar og Þjóðverjar leggist saman á sveifina,“ sagði Steinmeier. „Málum er augljóslega ekki þannig háttað, þetta á þó ekki aðeins við um Breta og Þjóðverja.“

Utanríkisráðherrann var spurður hvort Þjóðverjar teldu unnt að breyta sáttmálum ESB á árinu 2017 og hann svaraði: „Ég get ekki spáð neinu um þetta… Skoðanir eru svo skiptar að mér er í raun ómögulegt spá nokkru.“

Hague sagði sér væri ljóst að sáttmálbreytingar væru ekki „helsta forgangsmál allra ríkisstjórna“. Bretar tækju ekki á nokkurn hátt nærri sér orð François Hollandes Frakklandsforseta föstudaginn 31. janúar á blaðamannafundi á herflugvelli í suðurhluta Englands.

„Franska ríkisstjórnin hafnar ekki umbótunum sem falla undir óskir okkar,“ sagði Hague á blaðamannafundinum með Steinmeier.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS