Erlendir ökumenn í Þýskalandi verða látnir greiða veggjald frá og með 2016 sagði samgönguráðherra landsins fimmtudaginn 10. apríl. Þetta kom fram í viðtali við Alexander Dobrindt, ráðherra úr CSU-flokknum, í blaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung. Hann sagði dagsetningu vegna upphafs gjaldtökunnar á þessu stigi vera 1. janúar 2016.
Gagnrýnendur gjaldtökunnar segja hana brjóta í bága við jafnréttislög Evrópusambandsins. Stuðningsmenn hennar segja að unnt sé að innleiða hana með því að lækka samgönguþáttinn í skattgreiðslum þýskra borgara og síðan verði allir skyldaðir til að greiða veggjald.
Yrði þessi leið farin yrðu útlendingar að borga en útgjöld Þjóðverja yrðu hin sömu og áður þar sem útgjöld þeirra til samgöngumála á skattseðlinum hefðu lækkað.
Ríkisstjórnin stefnir að því að afla tugmilljóna evra með veggjaldinu og nýta fjármunina til að fylla gatið í fjármögnun samgöngumannvirkja.
Austurríkismenn og Hollendingar hóta lögsókn til að stöðva áformin um veggjaldið með vísan til ESB-laga. Dobrindt telur hins vegar að það sé „réttlætismál“ að allir sem aka um þýska vegi standi undir kostnaði við vegakerfið.
Veggjaldið var eitt af kosningastefnumálum Kristilega sósíalistaflokksins (CSU) í Bæjaralandi fyrir sambandsþingskosningarnar í september 2013.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.