Fimmtudagurinn 5. desember 2019

Skotland: Ný könun bendir til að sjálfstæðis­sinnar séu að ná undirtökum

Þeir sem eru fæddir í Englandi geta haft mikil áhrif á úrslitin


20. apríl 2014 klukkan 11:27
Fánar Bretlands og Skotlands.

Ný könnun sem birt var í Skotlandi í morgun bendir til þess að sjálfstæðissinnar kunni að vera að ná undirtökunum í baráttunni vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í september um sjálfstæði Skotlands. Þessi könnun sem gerð er fyrir blaðið Scotland on Sunday bendir til að sjálfstæðissinnar þurfi einungis að ná fram 2 prósentustiga sveiflu á milli fylkinga til þess að verða ofan á.

Samkvæmt þessari könnun hefur andstæðingum sjálfstæðis fækkað úir 46% í 42% á einum mánuði. Á sama tíma hefur fylgi sjálfstæðissinna haldist stöðugt um 39%. Óákveðnir eru 19%. Þegar þeir eru undanskildir eru andstæðingar sjálfstæðis með 52% en sjálfstæðissinnar með 48%. Þeir sem vilja sjálfstætt Skotland hafa aldrei verið fleiri en skv. þessari könnun.

The Scotsman segir að frekari greining á könnun þessari bendi til að um 460 þúsund kjósendur, sem voru fæddir í Englandi en búa í Skotlandi geti haft mikil áhrif á niðurstöðuna. Þeir eru líklegri en aðrir til að greiða atkvæði gegn sjálfstæði að því er fram kemur. Af þeim sem eru fæddir í Englandi ætla 28% að greiða atkvæði með sjálfstæði en 58% á móti.

Af þeim sem eru fæddir í Skotlandi ætla 42% að greiða atkvæði með sjálfstæði en 40% á móti.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS