Alex Salmond, forsætisráðherra heimastjórnar Skota sagði í ræðu hjá College of Europe í Bruges að ef sjálfstæðu Skotlandi yrði hafnað um aðild að Evrópusambandinu mundu 12 ríki þess verða útilokuð frá veiðum í skozkri fiskveiðilögsögu. Jafnframt mátti skilja ræðu hans þannig að fiskiskip frá öðrum þjóðum, sem hafi veiðirétt í norskri fiskveiðilögsögu mundu ekki geta nýtt þann rétt vegna þess að þau kæmust þangað ekki nema fara um skozka lögsögu.
David Mundell, Skotlandsmálaráðherra í brezku ríkisstjórninni segir að Salmond hafi orðið á alvarleg lagaleg og diplómatísk mistök vegna þess að sjálfstætt Skotland væri lagalega skylt að veita fiskiskipum annarra þjóða umferðarrétt um skozka lögsögu. Þá benti Mundell á að skozk skip veiði í lögsögu ESB m.a. í Norðursjónum. Önnur aðildarríki ESB veiði lítið af fiski í lögsögu sem mundi verða Skotlands og í hugsanlegum aðildarviðræðum mundu þær þrýsta á um aðgang að skozkri lögsögu fremur en að veita Skotlandi aðgang að lögsögu ESB.
Bertie Armstrong framkvæmdastjóri Landssambands skozkra fiskimanna segir að þetta sé vandamál sem snúi fyrst og fremst að Spánverjum og Írum en það blasi líka við að í tilviki sem þessu mundu stórir hlutar Norðursjávar og Írlandshafs lokast fyrir skozkum fiskiskipum.
Frá þessu segir brezka blaðið Guardian.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.