Samdráttur í Hollandi, Finnlandi, Portúgal og Ítalíu-Stöðnun í Frakklandi
Það dofnaði yfir hagvexti á evrusvæðinu á fyrsta fjórðungi þessa árs að því er fram kemur í Daily Telegraph í dag. Finnland er komið í efnahagslegan samdrátt eins og fjallað er um á viðskiptavakt Evrópuvaktarinnar í dag. Verg landsframleiðsla Hollendinga minnkaði um 1,4%, Portúgala um 0,7% og Ítala um 0,1%. Ítalska hugveitan Nomisma segir að efnahagsleg endurreisn hafi gufað upp.
Þessar fréttir urðu til þess að hlutabréfamarkaðir í Evrópu féllu. Hlutabréfavísitalan í Mílanó lækkaði um 3,6%, í Madrid um 2,35% og í Frakklandi um 1,25%. Fjárfestar seldu hlutabréf og keyptu skuldabréf.
Frakkland er í stöðnun. Þar er enginn vöxtur en heldur ekki minnkun. Observatoire Economique segir horfurnar verri en tölurnar segi til um. Í Frakklandi hafi verið alger stöðnun í áratug og það hafi ekki gerzt fyrr frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari.
Prófessor við háskóla í Genf segir að þessi þróun ætti ekki að koma á óvart. Þótt ekki sé gengið jafn hart fram í aðhaldi og áður sé það enn til staðar.
Á evrusvæðinu öllu var hagvöxtur 0,2% en hann byggist fyrst og fremst á aukningu í Þýzkalandi um 0,8%.
Í Hollandi hafa vaknað umræður um að taka upp hinn gamla gjaldmiðil landsins á ný.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.