Rinat Akmetov, auðugasti maður Úkraínu, hefur beitt áhrifum sínum gegn aðskilnaðarsinnum í hópi Rússavina í austurhluta landsins. Hann hvatti starfsmenn í fyrirtækjum sínum og aðra að taka þátt í friðargöngum í héraðinu.
Hópar fólks tóku kalli hans þriðjudaginn 20. maí en ekki fjölmenni segir í frétt Deutsche Welle. Nokkur hundruð manns hafi þó komið saman á knattspyrnuvelli sem Akmetov á í Donetsk. Reuters-fréttastofan segir að þeyttar hafi verið sírenur á verksmiðjum Akemtov í Donetsk og Mariupol, hafnarbæ við Azov-haf. Í öðrum borgum hafi ökumenn þeytt horn bifreiða sinna til stuðnings Akemtov.
Auðmaðurinn sendi frá sér ávarp á myndbandi mánudaginn 19. maí og mælti þar gegn aðskilnaðarsinnum í Donbass-héraði þar sem hann á stáliðjuver, verksmiðjur og kolanámur. Hann sagði aðskilnaðarsinna stefna velferð héraðsins í hættu með gripdeildum og mannránum. Það mundi enginn hræða hann eða aðra, ekki einu sinni þeir sem stofnað hefðu Alþýðulýðveldið Donetsk.
Fyrir nokkrum dögum skipulagði eitt fyrirtækja hans hópa stálsmiða sem unnu með lögreglunni í Mariupol að öryggisgæslu þar. Þeir hröktu meðal annars aðskilnaðarsinna úr stjórnarbyggingum í borginni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.