Sunnudagurinn 22. apríl 2018

Alþjóða­viðskipta­stofnunin styður sölubann ESB á selafurðum


22. maí 2014 klukkan 15:22

Alþjóðaviðskiptastofnunin tók fimmtudaginn 22. maí undir bann Evrópusambandsins við sölu á selafurðum með því að hafna áfrýjuarkröfum frá Kanadamönnum og Norðmönnum. Stofnunin segir að aðgerðir til dýraverndar séu rétthærri en viðskipti með dýraafurðir. Niðurstaðan er að ESB hafi ekki brotið reglur um alþjóðlegt viðskiptafrelsi með sölubanni sínu árið 2010.

AFP-fréttastofan segir að Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) í Genf hafi aldrei áður tekið afstöðu í máli þar sem reynir annars vegar á dýravernd og hins vegar alþjóðlegar viðskiptareglur. Sérfræðingar telji að með þessari niðurstöðu verði þáttaskil að þessu leyti.

Lokaniðurstaðan innan WTO er í samræmi við niðurstöðu sérfræðingahóps innan stofnunarinnar sem kemur saman til að leysa úr ágreiningsmálum og er skipaður sjálfstæðum sérfræðingum á sviði viðskipta og lögfræði.

Norðmenn og Kanadamenn ákváðu að áfrýja niðurstöðu sérfræðinganna sem lá fyrir í nóvember 2013. Þeir sem fjölluðu um áfrýjunina sögðu að vissulega væru rök fyrir þeirri skoðun Kanadamanna og Norðmanna að bannið spillti sölu á selafurðunum hitt vægi þó þyngra að siðferðilega teldi ESB mikilvægt að huga að vernd sela.

Þeir sem hafa andmælt siðferðilega sjónarmiðinu í málinu segja að með því að setja það í öndvegi sé opnuð leið fyrir margvísleg önnur álitaefni sem ríki kunni að nýta sér.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS