Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Rýtingarnir eru á lofti - en ESB-vélin heldur áfram að mala


14. september 2010 klukkan 08:58

Össur Skarphéðinsson, Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, á blaðamannafundi í Brussel, 27. júlí, 2010.

Á meðan alþingismenn rífast innbyrðis um hverja eigi að draga fyrir landsdóm og hverja ekki og svo margir rýtingar á lofti í þingflokki Samfylkingar að ekki verður tölu á komið, þótt flestir virðist í eigu Össurar, heldur ESB-vélin áfram að leggja undir sig íslenzka stjórnkerfið og er fegin að fá frið frá fjölmiðlaathygli við það verk.

Nú verða andstæðingar aðildar Íslands að ESB að reiða sig á Ögmund Jónasson, að hann standi við stóru orðin þrátt fyrir loðið orðalag (í versta falli!) eða dipómatískt orðalag (í bezta falli!)við ráðherraskiptin, að hann myndi órjúfanlegan varnarvegg með Jóni Bjarnasyni og vísi frá öllum hugmyndum og tillögum um verkefni skv. IPA landsáætlun í þeim ráðuneytum, sem undir hann heyra.

Ögmundur má ekki taka langan tíma í að „skoða“ þau mál. Þetta er spurning um prinsipafstöðu. Ögmundur Jónasson hefur hingað til ekki verið lengi að taka slíkar ákvarðanir.

Eða hvað?

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum

Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknar­flokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.

Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins

Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunar­stjóra ESB, halda áfram.

Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?

Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.

Fjölmiðlar taka varla eftir ákvörðun Íslands um hlé á viðræðum

Ákvörðun ríkis­stjórnar Íslands um að gera hlé á viðræðum við Evrópu­sambandið hefur engu uppnámi valdið í nágrannalöndum okkar, hvorki í Evrópu eða Norður-Ameríku. Þessarar ákvörðunar er ekki getið í helztu fréttum dagblaða og/eða útvarps- og sjónvarpsstöðva nema á vefmiðlinum euobserver, sem segir frá blaðamannafundi Stefáns Fule og Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkis­ráðherra, í gær.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS