Það má ekki á milli sjá, hvort málæðið er meira í Degi B. Eggertssyni, borgarfulltrúa, sem leiddi starf nefndarinnar, sem bjó til sóknaráætlun 2020 eða í texta nefndarinnar. Og nú er fólkið á landsbyggðinni byrjað að átta sig á, að sóknaráætlun 2020 er ekkert nema orð. Orð, orð, orð. Enginn byggir afkomu sína á orðum einum. Verkin verða að tala.
Í Sóknaráætlun 2020 og málflutningi Dags B. Eggertssonar er vanda Samfylkingarinnar sem stjórnmálaflokks lýst í hnotskurn. Flokkurinn telur að stjórnmál snúist um að tala og tala en áttar sig ekki á að það þarf líka að bretta upp ermar.
Sennilega á Sóknaráætlun 2020 og málflutningur Dags eftir að verða eins konar tákn um það í framtíðinni hvers vegna Samfylkingin reyndist misheppnaður stjórnmálaflokkur.
En meðal annarra orða: hvenær ætlar ríkisstjórn opinnar og gagnsærrar stjórnsýslu að upplýsa um kostnaðinn við Sóknaráætlun 2020 og almannatengslafyrirtækið, sem samdi áætlunina?!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...