Spyr hvort Ögmundur Jónasson sé maður orða sinna
Nú er orðið þungt undir fæti í samskiptum Samfylkingar og Vinstri grænna. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar spyr með nokkrum þjósti, hvort Ögmundur Jónasson ætli að starfa áfram undir verkstjórn þess forsætisráðherra, sem hann saki um dómgreindarskort. Ef svarið verði já eigi innanríkisráðherra að draga orð sín til baka. Ef svarið verði nei spyr þingmaðurinn hvernig ráðherrann ætli að vera maður orða sinna.
Það er óneitanlega athyglisvert að sjá hvernig þingmaður Samfylkingar telur henta að tala til ráðherra samstarfsflokksins í ríkisstjórn.
Ólína lætur ekki þar við sitja. Hún kveður upp þann dóm yfir Lilju Mósesdóttur, þingmanni VG að hún sé „sérlunduð“ og „sjálfhverf“ og hafi farið með „hreint níð“ um Jóhönnu Sigurðardóttur.
Einhverjum kann að þykja það koma úr hörðustu átt, að Ólína saki aðra um sjálfhverfni!
En hvað um það.
Hvað á þessi þjóð að sitja lengi uppi með ríkisstjórn þar sem samstarfsmenn tala saman á þennan veg?
Þess skal getið að mbl.is tekur ofangreind ummæli upp af blokksíðu Ólínar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...