
Aðilar vinnumarkaðarins tala kurteislega um tilboð ríkisstjórnarinnar frá því í gær til þess að greiða fyrir kjarasamningum en viðbrögð þeirra sýna svo ekki verður um villzt, að bæði vinnuveitendur og verkalýðshreyfing eru mjög óánægð með það. Jóhanna Sigurðardóttir kynnti hugmyndir ríkisstjórnarinnar í gær sem eins konar tilboð sem ekki væri hægt að hafna, svo gott væri það og dýrt fyrir ríkissjóð. Í ljós kom að í tilboðinu er meira um innantóm loforð og fyrirheit um að „skoða“ mál en áþreifanlega hluti.
Samstaða aðila vinnumarkaðarins um að hugmyndir ríkisstjórnar séu óviðunandi er hins vegar alvarleg tíðindi fyrir ráðherrana. Þeir hafa vafalaust gert sér hugmyndir um, að þeir gætu splundrað slíkri hugsanlegri samstöðu en nú er komið í ljós, að svo er ekki.
Með hverjum degi verður ljósara að við stjórnvölinn situr fólk, sem ræður ekkert við það verkefni, sem það hefur tekið að sér.
Verkalýðshreyfing, vinnuveitendur og ríkisstjórn horfast í augu. Hver deplar fyrst augum?
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB?
Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þingflokkur VG styðji núverandi ríkisstjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.
Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar
Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...
Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir
Forsvarsmenn Evrópusambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikisstjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku samfélagi.
Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnarflokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnarflokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.