Mánudagurinn 9. desember 2019

Dæmið sem sýnir að Jóhanna hefur ekki starfhæfan meirihluta á Alþingi


16. apríl 2011 klukkan 06:19

Jóhanna Sigurðardóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir gafst upp á því í gær að mæla fyrir frumvarpi sínu um nýskipan stjórnarráðsins á Alþingi í gær, að því er fram kom í fréttum RÚV-sjónvarps í gærkvöldi. Ástæðan er augljós. Það er enginn meirihluti fyrir frumvarpinu á Alþingi. Jón Bjarnason, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála er því andvígur.

Ef Jóhanna reynir að ná frumvarpinu í gegn t.d. með stuðningi Sivjar Friðleifsdóttur og Guðmundar Steingrímssonar, sem augljóslega hafa samúð með ríkisstjórninni má ganga út frá því sem vísu, að Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttur mundu standa með Jóni Bjarnasyni. Jóhanna næði því heldur ekki meirihluta með frumvarpinu jafnvel þótt hún semdi við þau Siv og Guðmund.

Hér er á ferðinni fyrsta skýra dæmið um að ríkisstjórnin hefur ekki starfhæfan meirihluta á Alþingi.

Jóhanna Sigurðardóttir kvaðst þess að vísu fullviss í samtali við RÚV í gærkvöldi, að það væri meirihluti fyrir málinu á Alþingi. Það eru bara mannalæti.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS