Þriðjudagurinn 21. maí 2013

„Markaðspaníkkin“ , dauði evrunnar og tilvistarkreppa ESB


20. júlí 2011 klukkan 07:28

Fyrir skömmu sat Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar í útvarpi og útskýrði fyrir hlustendum hvað væri að gerast á evrusvæðinu. Hún sagði að það væri bara „markaðspaníkk“.

Ekki eru allir sammála því mati þingmannsins. Fréttastofa RÚV er nýbúinn að uppgötva að eitthvað meira er á ferðinni og er byrjuð að segja reglulega fréttir af atburðarás, sem hófst snemma vors 2010. Jafnvel Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Fréttablaðið hafa komizt að sömu niðurstöðu!

Össur Skarphéðinsson

Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Emmu Bonino, sem áður sat í framkvæmdastjórn ESB og ítalskan samstarfsmann hennar þar sem segir:

Árni Þór Sigurðsson

„Annar kosturinn er að ríki evrusvæðisins verði áfram fullvalda og endurheimti völd sín á sviði peningamála, sem felur ekki aðeins í sér dauða evrunnar, heldur myndi það stefna innri markaðnum og jafnvel tilvist Evrópusambandsins í hættu. Hinn kosturinn er að ríkin gangi lengra í því að afsala sér fullveldisrétti til Evrópusambandsins og það felur ekki aðeins í sér að evran haldi velli heldur getur það einnig af sér pólitíska sameiningu Evrópu, sem er ef til vill mikilvægara atriði.“

Er til of mikils mælzt að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis ræði þessi viðhorf við íslenzku þjóðina í ljósi aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu?

Það væri ekki verra ef leiðtogar stjórnarandstöðunnar gerðu það líka.

Og svo væri náttúrlega æskilegt að þingmaðurinn Sigriður Ingibjörg Ingadóttir, útskýrði aftur fyrir þjóðinni tengslin á milli þess, sem hún kallar „markaðspaníkk“ og yfirvofandi dauða evrunnar að mati fyrrverandi fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB!

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hin „strategíska“ spurning sem VG stendur frammi fyrir

Nú blasa endalokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri stjórn lýðveldistímans. Og vafalaust velta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðuneyti sínu öðru hvoru megin við næstu helgi, hvort þeir eigi einhvern tímann afturkvæmt. Það er kannski stærri spurning en stundum áður, þegar ráðherrar hafa yfirgefið ráðuneyti.

Þau fengu tækifæri og klúðruðu því

Stjórnar­myndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknar­flokk og Sjálfstæðis­flokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.

Hvar og hvenær missti framkvæmda­stjórn ESB jarð­sambandið?

Sendi­nefnd Evrópu­sambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávar­útvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnar­myndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS