Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Framboð á vegum Lilju Mósesdóttur veldur óróa


3. nóvember 2011 klukkan 10:36

Áform Lilju Mósesdóttur, alþingismanns, um stofnun nýs stjórnmálaafls valda augljóslega óróa í ýmsum herbúðum. Þau valda áhyggjum hjá Vinstri grænum, sem sjá fram á fylgistap til slíks framboðs. Þau valda áhyggjum hjá Hreyfingunni ef marka má frétt á Smugunni, sem bendir til þess að þingmenn Hreyfingarinnar hafi gert sér vonir um að Lilja mundi ganga til liðs við þá en hafi orðið fyrir vonbrigðum. Þau valda áhyggjum hjá Samfylkingunni en þar á bæ gerir fólk sér grein fyrir að máflutningur Lilju getur höggvið inn í þeirra raðir.

Að vísu hefur þess enn ekki gætt að Sjálfstæðismenn séu órólegir út af hugsanlegu framboði á vegum Lilju. En það er nú kannski of mikil bjartsýni. Sumt í málflutningi hennar um efnahagsmál getur höfðað til kjósenda Sjálfstæðisflokksins.

Þessi óróleiki hér og þar bendir til þess að jarðvegur sé fyrir framboði á vegum LIlju Mósesdóttur.

En svo á eftir að koma í ljós, hvernig þingmanninum tekst að vinna úr þeim tækifærum.

Á framboðum á vegum Lilju Mósesdóttur og Guðmundar Steingrímssonar er einn grundvallarmunur, sem getur skipt sköpum.

Ekki fer á milli mála, að Lilja hefur ýmislegt að segja.

Það á eftir að koma í ljós hvort og þá hvað Guðmundur Steingrímsson hefur að segja.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS