Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, upplýsti í viðtali við RÚV um áramót hver pólitísk markmið stjórnarflokkanna eru á næstu árum. Hún sagði að flokkarnir þyrftu tvö kjörtímabil í viðbót til þess að koma fram þeim breytingum á þjóðfélaginu, sem þeir stefni að.
Telja má óhugsandi, að núverandi stjórnarflokkum takist að ná þessu markmiði einum og sér en þeir gætu hins vegar náð því að vera áfram við völd að loknum þingkosningum vorið 2013 með aðstoð nýrra framboða á miðju-vinstri kantinum með svipuðum hætti og gerzt hefur í borgarstjórn Reykjavíkur.
Þá er spurningin þessi: hefur forysta Sjálfstæðisflokksins gert sér einhverjar hugmyndir um hvernig hún ætlar að mæta þeirri nýju pólitísku ógn, sem hún augljóslega stendur frammi fyrir?
Það er augljóst að vinstri flokkarnir stefna á jafnvel enn sterkari stöðu en þeir náðu á árunum milli 1930 og 1940.
Gerir forystusveit Sjálfstæðisflokksins sér grein fyrir þessu?
Hefur hún mótað einhverja stefnu til þess að mæta slíkri sókn vinstri aflanna í landinu?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...