Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra og formaður VG hefur verið á ferð í Brussel. Ætla mætti að ferð hans þangað þætti traustvekjandi frá sjónarhóli þeirra, sem andvígir eru aðild að ESB. VG er flokkur, sem hefur lýst sig andvígan aðild að ESB. Æðstu stofnanir flokksins hafa samþykkt þá stefnumörkun. Steingrímur J. Sigfússon hefur ítrekað lýst þeirri persónulegu skoðun sinni, að Íslandi eigi ekki að gerast aðili.
Engu að síður er það svo, að ferð Steingríms J. til Brussel vekur blendnar tilfinningar hjá andstæðingum aðildar.
Hvers vegna?
Vegna þess, að Steingrímur J. Sigfússon hefur sýnt aftur og aftur að orð og gerðir fara ekki saman þegar ESB á hlut að máli. Hann er sá íslenzkur stjórnmálamaður, sem hefur veitt Samfylkingunni skjól til að flækja Íslandi meir og meir inn í ESB-kerfið.
Honum er einfaldlega ekki treyst til þess að standa vörð um hagsmuni Íslands.
Getur verið að Steingrímur J. hafi „ánetjast“ ESB eins og margir aðrir, svo að notað sé orðalag Ögmundar Jónassonar?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, skrifar mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann færir sterk rök að því að mikil mistök hafi verið gerð við kaup nýju bankanna á eignum gömlu bankanna og að þær hafi verið keyptar of háu verði án þess að nokkrir fyrirvarar hafi verið gerðir. Þi...
Ýmis grasrótarsamtök vinna að því að mynda einhvers konar breiðfylkingu til framboðs í næstu þingkosningum. Það verður sjálfsagt ekki auðvelt verk enda skoðanir skiptar í þeim hópum. Hins vegar ætti það að verða slíkri breiðfylkingu nokkur styrkur, að þingmenn Hreyfingarinnar hafa hver með sínum hætti vakið nokkra athygli frá því að þeir tóku sæti á þingi.
Það virðist stöðugt vesen vera með forseta. Á Íslandi snúast umræður um forsetaembættið um það, hvort núverandi forseti sé hættur við að hætta. Hann sagðist ætla að hætta. En sóttu einhverjar efasemdir á hann eftir nýársávarpið? Reyndar eru sumir þeirrar skoðunar að Dorrit mundi fljúga inn færi hún í forsetaframboð. Í Þýzkalandi koma reglulega upp vandræði með forseta.
Hvað hefði Jóhanna sagt um „kommissar“ frá Brussel í stjórnarráðið við Lækjargötu?
Svo langt er nú gengið í að þrengja að Grikkjum, að Papademos, forsætisráðherra, hefur orðið að bera til baka fréttir, sem birtzt hafa í grískum fjölmiðlum um að lánardrottnar Grikkja hyggist setja sérstakan „kommissar“ inn í hvert ráðuneyti í Aþenu til þess að hafa stjórn á málum.