Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Jóhanna svarar spurningum á þingi með skætingi


27. janúar 2012 klukkan 09:39
Jóhanna Sigurðardóttir

Hafa landsmenn tekið eftir því hvernig Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, svarar spurningum þingmanna á Alþingi? Hún veitir yfirleitt ekki efnisleg svör. Hún svarar með skætingi.

Í gær gerði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins skuldavanda heimila að umræðuefni á Alþingi.

Forsætisráðherrann svaraði því einu, að þingmaðurinn stundaði „útúrsnúninga“ og væri á ferð í „villuljósi fortíðar“.

Á almenningur í landinu ekki kröfu á efnislegum svörum við efnislegum spurningum eða athugasemdum þingmanna frá forsætisráðherra?

Hefur ráðherrann fengið aðkenningu af „hubris“ (ofurhroka)?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Björn Bjarnason Pistill

Meirihluti alþingis skilar auðu um stjórnar­skrárbreytingar - kaupir Þór Saari til að bjarga ríkis­stjórninni

Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnar­skrá 29. júlí 2011. Þing­nefnd, stjórnskipunar- og eftirlits­nefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sér­fræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Athyglisverð grein Einars K. Guðfinnssonar ýtir undir kröfur um rannsókn á seinni einkavæðingu bankanna

Einar K. Guðfinnsson, alþingis­maður, skrifar mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann færir sterk rök að því að mikil mistök hafi verið gerð við kaup nýju bankanna á eignum gömlu bankanna og að þær hafi verið keyptar of háu verði án þess að nokkrir fyrirvarar hafi verið gerðir. Þi...

Foringjaefni á ferð

Ýmis grasrótar­samtök vinna að því að mynda einhvers konar breiðfylkingu til framboðs í næstu þingkosningum. Það verður sjálfsagt ekki auðvelt verk enda skoðanir skiptar í þeim hópum. Hins vegar ætti það að verða slíkri breiðfylkingu nokkur styrkur, að þingmenn Hreyfingarinnar hafa hver með sínum hætti vakið nokkra athygli frá því að þeir tóku sæti á þingi.

Æsispennandi lokakafli

Það virðist stöðugt vesen vera með forseta. Á Íslandi snúast umræður um forsetaembættið um það, hvort núverandi forseti sé hættur við að hætta. Hann sagðist ætla að hætta. En sóttu einhverjar efasemdir á hann eftir nýársávarpið? Reyndar eru sumir þeirrar skoðunar að Dorrit mundi fljúga inn færi hún í forsetaframboð. Í Þýzkalandi koma reglulega upp vandræði með forseta.

Hvað hefði Jóhanna sagt um „kommissar“ frá Brussel í stjórnar­ráðið við Lækjargötu?

Svo langt er nú gengið í að þrengja að Grikkjum, að Papademos, forsætis­ráðherra, hefur orðið að bera til baka fréttir, sem birtzt hafa í grískum fjölmiðlum um að lánardrottnar Grikkja hyggist setja sérstakan „kommissar“ inn í hvert ráðuneyti í Aþenu til þess að hafa stjórn á málum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS