Föstudagurinn 5. mars 2021

Jóhanna er orðin „lame duck“ forsætis­ráðherra


7. maí 2012 klukkan 09:26
Jóhanna Sigurðardóttir

Árni Páll Árnason, alþingismaður Samfylkingar og fyrrum ráðherra, staðfesti í útvarpsþætti Sigurjóns M. Egilssonar, á Bylgjunni í gærmorgun, að vilji sé fyrir því að skipta um formann í flokknum og samkvæmt fréttum DV af því samtali er ljóst að hann hefur ekki mótmælt þeim upplýsingum Sigurjóns, að nýr formaður verði kjörinn á landsfundi Samfylkingar í janúar eða febrúar á næsta ári.

Með þessum yfirlýsingum Árna Páls og fyrri ummælum Össurar Skarphéðinssonar um væntanleg formannsskipti verður að telja, að baráttan um hver verði næsti formaður Samfylkingarinnar sé hafin fyrir opnum tjöldum.

Það þýðir jafnfamt að Jóhanna Sigurðardóttir er orðin það sem á pólitísku tungumáli Bandaríkjamanna er kallað „lame duck“ forsætisráðherra. Vald hennar er stórskert vegna þess, að allir vita að á sama tíma að ári verður hún ekki lengur formaður Samfylkingarinnar.

Þessi skerta valdastaða á eftir að verða enn vandræðalegri fyrir Samfylkinguna og kalla fram kröfur um að formannskjöri verði flýtt og að nýr formaður taki við embætti forsætisráðherra frá og með haustinu til þess að styrkja stöðu flokksins í þingkosningum.

Það verður ómöguleg staða fyrir Samnfylkinguna og óþolandi fyrir nýjan formann að Jóhanna sitji sem fastast sem forsætisráðherra fram yfir kjördag.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS