
Það er til listi yfir þá þjóðarleiðtoga, sem ekki eru konungbornir en lengst hafa setið. Ólafur Ragnar Grímsson er í 21. sæti af 50 á þessum lista. Það er umhugsunarefni en ekki síður hverjir eru næst á undan honum.
Það eru forseti Kamerún, Sahrawi lýðveldis, Equatorial Guinea, Angola, Zimbabwe, Iran, Kambódía, Uganda, Burkina Faso, Kazakhstan, Uzbekistan, Súdan, Chad, Eþíópía, Tajikistan, Eritrea, Hvíta-Rússland, Gambia, Lúxemborg (forsætisráðherra), Saint Kitts og Nevis.
Svo kemur Ísland.
Hamingjuefni fyrir Íslendinga?
(Heimild: Wikipedia)
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnarflokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnarflokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.
Hin „strategíska“ spurning sem VG stendur frammi fyrir
Nú blasa endalokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri stjórn lýðveldistímans. Og vafalaust velta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðuneyti sínu öðru hvoru megin við næstu helgi, hvort þeir eigi einhvern tímann afturkvæmt. Það er kannski stærri spurning en stundum áður, þegar ráðherrar hafa yfirgefið ráðuneyti.
Þau fengu tækifæri og klúðruðu því
Stjórnarmyndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...