Evrópusambandið virðist eiga hauka í horni, þar sem háskólar á Íslandi eru. Hvað ætli valdi því?
Alþekkt er að hingað kemur fylking fyrirlesara á hverju ári til að flytja boðskap Evrópusambandsins í nafni Háskóla Íslands og í gær var málþing í Háskólanum á Akureyri, augljóslega í samstarfi við Evrópusambandið þar sem kynntar voru niðurstöður könnunar um þekkingu Íslendinga á Evópusambandinu.
Nú er í sjálfu sér ekkert að því að Háskóli Íslands bjóði fyrirlesurum hingað til lands eða að Háskólinn á Akureyri haldi málþing um Evrópumál, þótt álitamál sé hvort eðlilegt er að gera það í samstarfi við Evrópustofu, sem er áróðursskrifstofa ESB á Íslandi.
Spurningin er hins vegar þessi: af hverju er þetta starf háskólanna allt á einn veg?
Kannski er tímabært að andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu láti á það reyna, hvort háskólarnir eru tilbúnir í slíkt samstarf við samtök þeirra??
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Rétt ákvörðun menntamálaráðherra í málefnum RÚV
Það er rétt hjá Illuga Gunnarssyni, menntamálaráðherra, að þingkjörin stjórn Ríkisútvarpsins er lýðræðislegri aðferð við að stjórna þeirri stofnun en valnefndarfyrirkomulagið, sem var í aðsigi. Þótt valnefndarskipan geti litið vel út á pappírnum býður það kerfi upp á að klíkuskapur í þeim samtökum, sem þar koma að málum ráði ferðinni.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.