Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Vill Össur ekki varanlegar undanþágur?


27. júní 2012 klukkan 10:40
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fagnar ræðu Árna Þórs Sigurðssonar, formanns utanríkismálanefndar alþingis, í þingsal.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að samningsmarkmið Íslands í sjávarútvegmálum í viðræðum við ESB séu tilbúin.

Í umræðum á Alþingi sumarið 2009 sagði Össur að Ísland þyrfti ekki á varanlegum undanþágum að halda frá sjávarútvegsstefnu ESB.

Ætli það sé grundvallarþáttur í samningsmarkmiðum Össurar?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?

Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávar­útvegs­stjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkis­mála­nefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópu­þinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.

Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum

Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknar­flokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.

Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins

Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunar­stjóra ESB, halda áfram.

Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?

Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS