Laugardagurinn 25. maí 2013

Steingrímur J. er byrjaður að undirbúa svikin við Samfylkinguna


4. júlí 2012 klukkan 07:00
Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir.

Nú er Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og ráðherra (man einhver nákvæmlega ráðherra hvaða málaflokka hann er?)byrjaður að undirbúa að yfirgefa Samfylkinguna á vegferð hennar inn í ESB. Hann veit að hann á ekki nema tveggja kosta völ: yfirgefa Samfylkinguna eða horfa á flokk sinn í rúst í næstu þingkosningum.

Hvaða tilefni ætli Steingrímur J. noti til að yfirgefa Samfylkinguna og Jóhönnu?

Það blasir við eftir heimsókn Maríu Damanaki hingað til lands.

Steingrímur J. mun nota makrílinn til að svíkja Jóhönnu.

Tækifærið gefst í haust, ef marka má forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag.

Hann er búinn að sjá hvernig Ólafur Ragnar gat þurrkað út í einu vetfangi hrunsyndir sínar með því að taka málstað þjóðarinnar í Icesave-málinu.

Nú mun Steingrímur J. þurrka út ESB-syndir sínar með því að taka forystu í baráttu Íslendinga í makríldeilunni.

Sennilega verður Steingrímur J. næsti forsætisráðherra landsins út á það!

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkis­stjórnar­innar gagnvart ESB?

Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þing­flokkur VG styðji núverandi ríkis­stjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnar­flokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnar­flokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS